Prófaskrifstofa heldur utan um leiðbeiningar á Uglu, fyrir notkun Inspera hjá Háskóla Íslands.
Hér munu fást svör við algengum spurningum sem nemendur hafa við notkun á Inspera.
Inspera hefur mjög ýtarlegar leiðbeiningar á ensku á vefsíðu sinni ef þú vilt lesa meira.
Við próftöku í Inspera koma oft upp eftirfarandi spurningar. Ef spurningar vakna sem svarast hvorki hér né á leiðbeiningasíðum á Uglu er næsta skrefið að hafa samband við Prófaskrifstofu.
Inspera er vefkerfi og því þarftu bara vafra (browser) sem er frekar nýlegur. Við mælum með Chrome en þú getur líka notað Safari, Firefox eða Edge.
Prófaskrifstofa heldur utan um Inspera aðgang Háskóla Íslands og veitir þér aðstoð ef þú þarft á að halda. Skoðaðu helst leiðbeiningarsíðurnar fyrst.
Við mælum með að þú kynnir þér vel leiðbeiningar fyrir nemendur hér á Uglu.
Inspera vistar svörin í prófinu reglulega. Ef netsamband rofnar vistast svörin á tölvunni þinni og sendast um leið og sambandið kemst á aftur.
Ef þú hefur frekari spurningar skaltu ekki hika við að senda okkur fyrirspurn.